Nýtt af PPRUNE
Facebook ofl.
Nýjasta tölublaðið

Flugið nr.9 - des 2011

Tilboð

Nýjasta+öll eldri á 3.400,-kr

Tilboð til nýrra áskrifenda. Flugið nr.9 og öll eldri (nr.2-8) á 3.400,- kr. Flugið nr.1 er því miður löngu uppselt. Mikið af efni blaðsins stenst vel tímans tönn og er jafn ánægjulegt til lestrar og skoðunar nú eins og áður.

Eldri tölublöð

Flugið nr.1 - apríl 2000

Flugið nr. 2 - apríl 2001

Flugið nr.3 - des 2003

Flugið nr.4 - ágúst 2005

Flugið nr.5 - des 2006

Flugið nr.6 - des 2007

Flugið nr.7 - júlí 2009

Flugið nr.8 - des 2010

img1

Á einum yfir pollinn. „Tölfræðin er alveg með manni þegar kemur að því að lenda á vatni. Það er yfirleitt ekki lendingin sjálf sem fer með menn, heldur kaldur sjórinn eða lélegur björgunarbúnaður.”

img1

Grasrót flugsins Fátítt er að menn eigi einir sínar flugvélar hérlendis enda fer kostnaður við eign og rekstur síhækkandi. Algengt er hinsvegar að menn eigi hlut í flugvél, hvernig svo sem hlutirnir skiptast..

img1

Á skíðum skemmti ég mér. Fágæti þess að sjá fallega skíðaðar flugvélar vekur upp spurninguna af hverju sjónin sé ekki algengari hér á landi..... Allt um það í nýjasta tbl.

img1

„Eitt sinn var einhver stríðnispúki í flugmönnunum og þeir kynntu mig fyrir dömunum sem nýja siglingarfræðinginn og bættu við að ég væri einstaklega laginn við að lesa í bolla. Það leið auðvitað ekki á löngu að ein ágæt flugfreyja kom fram í með kaffibollann....” Ottó Tynes í máli og myndum

img1

“Fjórar b747 Á keflavíkurflugvelli 30. nóveMber 1976.” Þessi texti birtist Á baksíðu Morgunblaðsins, 1. desember 1976. Gamlar og góðar myndir og sögurnar á bakvið þær. Úr smiðju Baldurs Sveins.

img1
Flugið nr.1, 2, 3, 4, 5, 6, 7 og 8
Öll eldri tölublöð fánleg. Aðeins 500,-kr stk. eða "Allur pakkinn" á 3.400,-kr
Tuesday
Jan242012

Monday
Jan162012

Meðal efnis - Dauðans alvara!

"...Til að kóróna allt saman ákvað flugfreyjan að kíkja fram í í klifrinu þar sem hún vissi af ástandi áhafna í þessum flugum og hafði þessi tiltekni flugstjóri beðið hana að koma framí öðru hverju til að athuga með flugmennina. Þegar hún kemur fram í bregður henni heldur en ekki í brún þegar hún sér að báðir eru í fastasvefni og vélin ennþá í klifri. Hún hristir flugstjórann og spyr hann hvort það væri í lagi að báðir flugmennirnir væru sofandi í klifrinu! ..."

Monday
Jan162012

Meðal efnis - Ottó Tynes

"Einn vetrardag árið 1969 var líklegast ekki skyrtuveður, en kalt reyndist vatnið renna milli skinns og hörunds hjá áhöfninni þann daginn. „Eins og Færeyjar eru nú fallegar og gaman að koma þangað þá var það þessi eina ferð þangað sem ég hefði frekar viljað sleppa. Flugtakið var til vesturs og rétt eftir að hjólin voru komin upp var eins og við hefðum verið svipt sjóninni og vélin byrjaði að hristast. Nú kallaði maður svo sem ekki allt ömmu sína í innanlandsflug- inu, en þarna var eins og vélin hefði verið tekin og hrist af einhverjum yfirnáttúrulegum kröftum, slíkur var djöfulgangurinn. Við sáum ekki á mælaborðið fyrir hristingi og ekki bætti það úr skák að vita af Bryndísi minni þarna aftur í. Með fjöllin umlykjandi, í engu skyggni og allt á reiðiskjálfi er fátt annað í stöðunni en að reyna að stýra frá klettunum og vona það besta. Ætli þetta hafi ekki verið yfirstaðið eftir rúma mínútu, en líklegast var þetta lengsta mínútan á minni ævi.“ 

Monday
Jan092012

Flugið nr.9 komið út!

Blað númer níu er komið út. Ekkert slegið af í gæðum og stærð blaðsins og af nógu að taka. Skemmtileg viðtöl og reynslusögur flugása fá hárin til að rísa. fræðist um flugklúbbamenningu landsins hjá þeim stærstu og rifjið upp tæknina við hliðarvindslendingar. Fréttir og fróðleikur og allt þar á milli.

Sunday
Jan082012

Næsta blað væntanlegt!

Thursday
Dec152011

Gjafaáskrift fyrir flugdellufólk. 3.000 kall fyrir 3 ár!

 

 

 

Í fyrsta sinn býður tímaritið Flugið upp á gjafaáskrift. Tilvalin jólagjöf fyrir flugáhugasama eða sem aukaglaðningur yfir hátíðarnar. Þú borgar 3000,-kr og viðkomandi fær send blöð heim að dyrum næstu 3 árin. Þetta tilboð gildir aðeins fram að áramótum.

Thursday
Dec152011

Logten Pro 6.0 - Endurbætur á góðu "appi"

Ný útgáfa af Logten er komin út. Meðal þess sem nýtt er í þessari útgáfu er "visual duty limits" þar sem hægt er að setja mörk reglugerðar og önnur mörk og vakta þau ekki bara í rauntíma heldur fram í tíma því hægt er að flytja inn vinnuskrár fram í tímann og sjá því mögulega árekstra. Fjöldi annara nýjunga er að finna en þær má lesa um á Coradine.com

Sunday
Sep182011

Ráðstefna um stöðluð vinnubrögð að vetri í flugrekstri

Keilir mun halda ráðstefnu þann 10.okt n.k. sem ber yfirskriftina "The first Winter Operation Forum".  Samstarfsaðilar eru Air Transport news, ACI, AEA, SITA, Icelandair og Samgönguráðuneytið.